Færsluflokkur: Bloggar

Enn einn skandallin með sýn

Ekki nóg með að ég hafi haft sýn í allan vetur án þess að nokkuð áhugavert hafi verið um að vera nema þegar meistardeildin í fótbolta var leikinn og þeir fá leikir sem sýndir voru í handbolta þar í vetur.

Nú var samningurinn við þá búinn, kom á óvart að það var rétt fyrir úrslitaleikinn í meistardeildinni en gott og vel með það þeir verða að fá eitthvað til að trekkja að.  Þegar ég sagðist ætla að borga næstu tvo mánui brá mér þegar stúlkan sagði að það kostað 9.700 kr. tveir mánuðir!!!

Því júní kostaði 7000 kr. vegna HM  í knattspyrni, ég sagði við stúkuna að ég myndi þá bara horfa á leikinna á breiðbandi skjásins enda erum við eina landi sem ég veit um sem HM er ekki í opinni dagsskrá. Nei þá sagði hún að skjárinn yrði að læsa þeim stöðvum sem sýndi leiki frá keppninni og ég gæti ekki horft á leiki þar því sýn hafi einkarétt á þessu efni.

Nú er mér spurn er þetta löglegt þar sem ég er búinn að borga fyrir einhvern pakka á skjánum og síðan verður honum lokað af megninu til því flesar þessara rása er með HM. 


Uppskeruhátíð tippklúbbsins horn í síðu

Á morgun verður uppskeruhátíð hjá okkur tippurum í Síðuskóla.  Dagskráin hefst kl. 18.00 með verðlaunaafhendingu og síðan verður snæddur kvöldverður og horft á leik Arsenal og Barcelona, eftir það fara fram almennar umræður.

Þeir sem hafa rétt til að mæta eru þeir sem hafa tippað á aðalskrifstofu Síðuskóla í vetur og telst okkur til að þetta séu ellefu mans.

Gleðskapurinn fer fram hjá mér í Kambsmýri 2. 


Á göngu í tilvonandi heimabæ

bilde.jpg
Hér er ég með Thomas Johanson sem verður aðstoðar og styrtarþjálfari hjá Elverum og Þóri Hergeirssyni sem er mjög virtur þar eftir að hafa gert liðið að deildarmeisturm fyrir 15 árum.

Kominn heim frá Elverum

Eftir mjög annasama helgi þar sem tíminn var vel nýttur.  Nokkrir mjög skemmtilegir hlutir komu fram á þessu námskeiði. 

Leif Gaudestad var með mjög skemmtilegar hugmyndir um uppbyggingu á mjög hröðum handbolta, hann for yfir æfingar og hugmyndafræðinna sem hann byggir þetta á.

Þórir Hergeirsson og Marit Breivik voru líka með fræðandi æfingu um hugmyndir þeirra um sóknarleik einum fleiri.

Mats Olsson er alltaf mjög góður og hefur verið gamann að fylgjast með hvernig hann hefur þróað sýnar æfingar með breyttum leikstíl en þetta var þriðja námskeiðið sem ég fer á með honum á sex árum.

Aðrir fyrirlestrar og sýniæfingar voru ekki eins spennandi.

En það var samt mikið um skemmtilegar umræður sem myndaðist og gaman að ræða við þjálfara  sem með hefur ekki fylgst með um þeirra hugmyndir.  Setið var framá nótt og málin rædd á hótelinu bæði föstudags og laugardagskvöld. 


Þá er ég komin til Elverum

Í gær kom ég í fyrsta skipti til Elverum og fékk mjög góðar móttökur af öllum bæði mönnum og veðri þar sem það var sól og blíða.

Ég hitti leikmenn og hafði fund og æfingu með þeim.  Norskan var nú aðeins styrð á fyrsta fundinum en ég vona að menn hafi skilið mig en ekki sagt bara já.

Leikmanna hópurinn er ágætur og eru þeir til í að leggja mikið á sig til að ná lengra en í ár.  Reyndar höfðu þeir lokahóf kvöldið áður svo sumir voru aðeins þreyttir.  Sigurður Ari er eini Íslendingurinn þarna og var gott að geta komið inn með nokkur íslensk orð inná milli og síðan verður gott að það er einhver sem skilur þegar maður fer að tala sýna íslensknorsku.  Það eru tveir Túnisbúar í liðinu og síðan er verið með nokkra Svía í myndinni til að styrkja liðið svo að það verður fjör á fundunum þegar maður fer að útskýra hlutinna.  Þetta bjargast nú allt enda er ég það mikill tungumálamaður.

Stjórnin var strax komnir með íbúð handa mér sem ég skoðaði í gær og er skemmtilegt parhús en það var 80 ára gömul kona sem átti heima þarna svo íbúðin er nokkuð í þeim stíl, meira um þetta seinna.

Síðan hefst þjálfaranámskeiðið í dag. 

Bið að heilsa öllum heima.   


Til Elverum á fimmtudag

Það verður spennandi að koma þangað og hitta þá menn sem ég hef verið í sambandi við í gegnum síma og e-mail.

Einnig mun ég sjá leikmenn á æfingu og halda fund með þeim um æfingar sumarsins, hvernig þeim mun verða háttað þangað til ég kem út og byrja 1, ágúst.

Þá get ég vonandi áttað mig betur á því hvernig leikmenn það eru sem liðinu vantar til þess að ná lengra næsta vetur og hvað þarf að leggja áherslu á í æfingunnum.  Ætluninn er að styrkja liðið um tvo til þrjá leikmenn fyrir næsta tímabil. 


Skandall

Ég sem er búinn að vera áskrifandi af Sýn í allan vetur án þess að horfa á hana nema á meistaradeildinna, ætlaði nú aldeilis að fara að horfa á handbolta.  En þá var Sýn læst og við munu ekki hvort að áskriftin sé búinn eða hvort þetta hafi verið mistök hjá Sýn því ég nennti ekki a bíða nema tíu mínútur eftir aðstoð og skellti á þegar ekkert hefði gerst.  

Ég ætla að vona að Sýn verði með fleiri leiki úr Þýska handboltanum á næstu vikum því þá mun ég tryggja það að ég nái þeim.


Helgin notuð í tilltekt

Við fjölskyldan notuðum helginna í að taka til utandyra hjá okkur og erum við nú tilbúinn að taka á móti sumrinu.  Búið að þrífa pallinn og útihúsgögninn svo maður fer að geta boðið til útiveislu.

Ég náði meira að segja  að taka lit í blíðunni sem verið hefur um helginna.  


Til hamingju Stebbi og Gunni

Enn sannast að þeir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson eru með allra bestu handboltadómurum í heim því þeir hafa verið settir á úrslitaleik meistardeildar kvenna milli Viborg og Krim Ljubljana.

Það er með ólíkindum að maður hafi nú reynt að segja þeim til í leikjum, en svona er þetta víst manni dettur ýmisleg í hug í hita leiksins.  Þeir hafa nú örugglega miklu meira vit á dómgæslunni en ég þrátt fyrir að ég dæmi 5 - 6 sinnum í viku á æfingu þá segja strákarnir að mér fari lítið fram á því sviði.

Ég er samt viss um að ég geti orðið góður dómari ef ég færi út í það á fullu, kannski eftir Noregsdvölinna fari maður að dæma. 


Hjólað í vinnuna

Nú stendur ÍSÍ fyrir átaki að fólk hjóli í vinnuna og við Síðuskólakennarar erum á fullu að keppa enda stoðum við okkur mjög vel í fyrra.  Síðan er þetta mjög gott þegar bensínverðið ríkur upp en kalóríurnar kosta nú ekkert í brennslu.

Síðan er Magnús Orri farinn að hjóla án hjálpardekkja og hjóluðu hann og Anna Brynja á Pálmholt í morgun.  Ég sótti hann síðan og fórum við á rúmlega klukkutíma hjólreiðatúr um hverfið.

Hjólreiðar eru virkilega góð og skemmtileg hreyfing. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband